Heilsunudd

Heilsunudd

Heilsunudd nær yfir margar mismunandi nuddaðferðir, s.s. klassískt nudd, íþróttanudd, heildrænt nudd, svæðanudd, sogæðanudd, kinesiologiu o.fl.

Nudd eykur hreyfigetu og vellíðan, það getur verið róandi og slakandi, það getur líka verið frískandi. Það losar um vöðvana og teygir á strekktum vöðvafestingum.

Nudd minnkar vöðvaspennu og vöðvabólgur og er árangursríkt í verkjameðhöndlun. Það eykur blóðflæði og hjálpar þannig til við að minnka bjúgmyndun. Þetta aukna blóðflæði verður til þess að flýta losun úrgangsefna úr vöðvum, en þau geta ert taugaenda.

Vöðvaslappleiki minnkar vegna þessarar auknu hreinsunar.
Nudd eykur flæði sogæðavökva svo um munar, hefur góð áhrif á brjóstholið og nudd á húð eykur fegurð.

Stöðug, mikil streita er álitin vera ein mesta orsök sjúkdóma í dag. Kvíði, spenna, sorg og einmanaleiki auka einkenni sjúkdóma og líkamlega vanlíðan s.s. verki og ógleði.